Velkomin

Satt - Í sannleika sagt

Þú velur það sem þér þykir gott því þú veist hvað er gott fyrir þig. Við matreiðum fyrir þig af innlifun úr besta hráefni sem við finnum. Við vitum upp á hár hvaðan það kemur og hversu lítið þarf til þess að gera úr því lostæti. Það þarf ekki að fara langt. Besta fæðan er yfirleitt skammt undan.

Besta hráefnið, ásamt alúð og innlifun, er í hávegum haft í eldhúsi Satt. Í okkar eigin bakaríi bökum við ilmandi og ferskt brauð og kökur á hverjum degi. Við baksturinn er byggt á gömlum íslenskum hefðum með nútímalegu ívafi.

 

ELDHÚS

Satt Eldhús

Satt er með lifandi starfsemi allan daginn og býður jafnt hótelgesti sem innlenda viðskiptavini velkomna í morgunverð, hádegisverð, kaffi og/eða kvöldverð.

Satt Eldhús leggur áherslu á íslenskt léttmeti, t.d. safa, súpur og salöt auk þess sem hamborgarar, girnilegar opnar samlokur ofl. er á boðstólum.

Stórt langborð, svokallað "Communal table", er fyrir þá sem vilja hittast saman í hópi eða eru einir og ófeimnir við að spjalla við ókunnuga. Við “Communal table” nýtur þú matarins í þakklæti með öðrum, kynnist fólki og blandar geði við heimamenn.

BETRI STOFA

Satt Betri stofa

Í Betri stofunni er kjörið að slaka á eftir annasaman dag eða hita upp fyrir skemmtilegt kvöld. Hægt er að panta sér úrval af drykkjum af barnum og við bjóðum uppá spennandi rétti sem hægt er að gæða sér á í góðra vina hópi. Hjá okkur er gleðistund eða Happy Hour alla daga á milli 16.00 og 18.00. Einnig bjóðum við uppá skemmtilega viðburði t.d lifandi tónlist á fimmtudögum.

Opið alla daga frá 11.00 - 01.00.

 

 

SATT BAR

Satt Bar

Gleðistund "Happy Hour"

Happy Hour er í boði alla daga frá kl. 16:00 - 18:00. Í boði er 50% afsláttur af bjór og léttvíni. Barþjónar okkar útbúa þinn uppáhaldsdrykk af stakri snilld.

Við bjóðum uppá gómsæta smárétti

Sönn ást er að deila með öðrum.....

Smábitar

  • Úrval af þurrkuðum pylsum  1.280 ISK
    Kjúklingalifrarafrauð með rauðlauk og rúsínum 1.850 ISK
    Reykt laxamús með kúmenhrökkbrauði  850 ISK
    Grænmeti árstíðarinnar með piparrótardýfu 450 ISK
    Grísa Pura “Chicharrón” með tabasco og paprika 450 ISK
    Heimagerðar kartöfluflögur 450 ISK
    Sykraðar og kryddaðar möndlur  450 ISK
Ostar
  • Bakaður gullostur með hnetum og hunangi 1.350 ISK
  • Blandaðir íslenskir ostar, kúmenkrydduð gulrótar
    og aprikósusulta 1.350 ISK

Sætu bitarnir

  • Flórentínur (möndlu og appelsínukrókant) 450 ISK
  • Marengstoppar 450 ISK
  • Súkkulaði „Brownie“ 450 ISK
  • Kókos „RAW „ biti 450 ISK

Afgreitt á milli 14.00 og 22.00

 

UM SATT

Satt - Sannur íslenskur matur borin fram af kærleika og góðum ásetningi

Gómsætar gjafir náttúrunar eru yfirleitt skammt undan og það þarf ekki mikið til að gera þær að lostæti

Opnunartími Satt

  • Satt Morgunverður
    Morgunverður er borinn fram frá kl. 04:15 - 10:00
  • Satt Eldhús
    Opið frá kl. 11:00 - 22:00
  • Satt Betri stofa
    Opin alla daga frá kl. 11:00 - 01:00
  • Satt Bar
    Opin frá kl. 11:00 - 01:00
  • Frekari upplýsingar fást í síma 444 4050 eða í tölvupósti á netfangið satt@sattrestaurant.is
  • Árshátíð framundan? Erum með glæsilega veislusali í öllum/nokkrum/ýmsum stærðum.
    Gerum tilboð í árshátíðir og erum með góð gistitilboð. Nánari upplýsingar á naturameetings@icehotels.is.